Skip to main content

Fyrirtækjaþjónusta

Matur í hádeginu fyrir fyrirtæki

Ljúfffengur og fjölbreyttur matur í hádeginu fyrir fyrirtæki er okkar markmið. Við bjóðum daglega upp á sjö mismunandi rétti. Á hverjum degi er nýr fiskréttur, kjötréttur, grænmetisréttur og salatréttur. Fastir réttur á matseðlinum eru hamborgari og franskar, fiskur í raspi og franskar og sesarsalat. Einnig bjóðum við upp á súpu dagsins, heimabakað brauð og ferskt meðlætissalat. Það ættu því allir að finna sér hádegismat við hæfi hjá okkur.
Við bjóðum alla okkar rétti í einnota umbúðum eða fjölnota gastro bökkum.

Mötuneytisþjónusta

Við leggjum okkur fram við að þjónusta allt sem við kemur hádegismat hjá fyrirtækjum. Við getum útvegað starfsfólk, sem er á staðnum og sér um að bera fram, skammta og ganga frá eftir hádegisverðinn. Einnig höfum við ýmsar lausnir varðandi hitaborð og annan útbúnað í mötuneyti fyrirtækja.

SÉRÞARFIR

Við gerum okkar besta til að koma til móts við sérþarfir viðskiptavina okkar. Við bjóðum lágkolvetna útgáfur af flestum rétta okkar og aðlögum réttina ef um óþol eða ofnæmi er að ræða.